Jöfnunarstyrkur

Jöfnunarstyrkur er námsstyrkur fyrir nemendur sem búa og stunda nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni. Umsóknarfrestur er til 15. október á haustönn og 15. febrúar á vorönn.

Ef umsókn um námsstyrk berst eftir auglýstan umsóknarfrest skerðist styrkurinn um 15% frá 1. nóvember á haustönn og frá 1. mars á vorönn. Ekki er hægt að sækja um styrk eftir að fjórir mánuðir eru liðnir frá umsóknarfresti á viðkomandi önn.

Það opnar fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk þann 1. september, bæði fyrir haust- og vorönn. 

Nánari upplýsingar um styrkinn má finna á vef Menntasjóðs námsmanna eða með því að senda fyrirspurn á menntasjodur@menntasjodur.is. Eingöngu er hægt að sækja um styrkinn með rafrænum skilríkjum með því að smella á "Mitt lán" á vefsíðu menntasjóðsins.