Umhverfis- og líffræðibraut er 200 eininga bóknámsbraut og er meðalnámstími 6-7 annir. Brautinni er skipt upp í kjarna, kjörsvið og frjálst val. Til að útskrifast af brautinni þurfa nemendur að ljúka 112 einingum af kjarnagreinum, 50 einingum af kjörsviðsgreinum og 38 einingum af frjálsu vali. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og nám á henni er góður undirbúningur fyrir frekara nám, sérstaklega í umhverfisfræði og líffræði.
Nemendur sem eru skráðir á Náttúruvísindabraut geta skipt yfir á Umhverfis- og líffræðibraut óski þeir eftir því. Þeir sem vilja skipta um braut tali við áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa. Breytingar gilda frá 1. ágúst 2024.
Ákveðið hlutfall eininga þarf að vera á hverju þrepi og þurfa námsferlar nemenda að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Hámark á 1. þrepi eru 55 einingar
- Lágmark á 3. þrepi eru 50 einingar
Lokamarkmið Umhverfis- og líffræðibrautar eru:
Að nemendur
- hafi góða almenna þekkingu á sviði raunvísinda
- séu færir um að beita vísindalegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mælingar, mat, úrvinnslu og túlkun
- geti fjallað um og tekið þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
- hafi öðlast meðvitund gagnvart umhverfi sínu, lært að njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
- geti nýtt kunnáttu í náttúru- og raunvísindum ásamt skapandi hugsun í mögulegri framtíðarþróun
- hafi hæfni til að lesa fræðitexta á ensku
- séu vel undirbúnir fyrir frekara nám, einkum í umhverfisfræði og líffræði.
Hér má finna allar áfangalýsingar skólans
Kjarni 112e |
|
|
|
|
1. þrep |
2. þrep |
3. þrep |
einingar |
DANS2TL05 |
DANS2LT05 |
|
|
|
|
10 |
|
10 |
ENSK2OT05 |
ENSK2TM05 |
ENSK3EX051 |
ENSK3HÁ051 |
ENSK3MB051 |
|
10 |
10 |
20 |
ÍSLE2MR05 |
ÍSLE2ED05 |
ÍSLE3NB052 |
ÍSLE3NJ052 |
ÍSLE3ÖL052 |
|
10 |
10 |
20 |
LÝÐH1HN01 |
LÝÐH1VN01 |
LÝÐH1HR01 |
LÝÐH1HR01 |
LÝÐH1HR01 |
5 |
|
|
5 |
FRAM1AA033 |
FRAM1AB03 |
FRAM2AA03 |
FRAM2AB03 |
|
6 |
6 |
|
12 |
STÆR2LF03 |
STÆR2FL02 |
STÆR2HL05 |
STÆR3TF054 |
|
|
10 |
5 |
15 |
SPÆN1BY05 |
SPÆN1SP05 |
SPÆN1ÞR05 |
|
|
15 |
|
|
15 |
NÁTT2GR05 |
|
|
|
|
|
5 |
|
5 |
UMHV2UN05 |
|
|
|
|
|
5 |
|
5 |
FÉLAGSGREIN5 |
|
|
|
|
|
5 |
|
5 |
Samtals: |
|
|
|
|
26 |
61 |
25 |
112 |
1) Velja þarf tvo af þremur áföngum á 3. þrepi í ensku og nemendur ráða í hvaða röð þeir taka þá; 2) Velja þarf tvo af þremur áföngum á 3. þrepi í íslensku og nemendur ráða í hvaða röð þeir taka þá; 3) FRAM er áfangi þar sem unnið er með framtíðarfærni s.s. tölvufærni, vinnulag, samskipti, fjármálalæsi og gagnrýna hugsun; 4) Velja má annan áfanga í stærðfræði á 3. þrepi; 5) Velja þarf einn áfanga í félagsfræði, heimspeki, sögu eða sálfræði sem hluta af kjarna, umfram 50 einingar af kjörsviði.
Samtals einingar á braut: 200
Gildir frá 1. ágúst 2024
Síðast breytt: 29. nóvember 2024