Opin stúdentsbraut, hestakjörsvið - NÝTT

Athugið að gerðar hafa verið breytingar á Opinni stúdentsbraut, hestakjörsviði og taka þær breytingar gildi 1. ágúst 2024. Þeir nemendur sem eru skráðir á gömlu Opnu stúdentsbrautina, hestakjörsvið geta skipt yfir á þessa óski þeir eftir því. Þeir sem vilja skipta um braut tali við áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa.

Opin stúdentsbraut, hestakjörsvið er 200 eininga bóknámsbraut og er meðalnámstími 6-7 annir. Brautinni er skipt upp í kjarna, kjörsvið og frjálst val. Til að útskrifast af brautinni þurfa nemendur að ljúka 112 einingum af kjarnagreinum, 43 einingum af kjörsviðsgreinum og 45 einingum af frjálsu vali. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og nám á henni er góður undirbúningur fyrir vinnumarkaðinn og/eða frekara nám á háskólastigi. Bent er á að við skipulagningu náms á opinni stúdentsbraut er mikilvægt að nemendur hafi samráð við náms- og starfsráðgjafa.

Sérhæfing á hestakjörsviði undirbýr nemendur til að vera aðstoðarmenn í hvers konar hestatengdri starfsemi, svo sem á hestabúgörðum, við hestatengda ferðaþjónustu eða hjá öðrum sambærilegum fyrirtækjum. Þeir sinna helstu verkþáttum í hirðingu hesta og aðstoða við þjálfun þeirra. Aðstoða í hestatengdri ferðaþjónustu og geta leiðbeint um grunnþætti hestamennsku.

Ákveðið hlutfall eininga þarf að vera á hverju þrepi og þurfa námsferlar nemenda að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Hámark á 1. þrepi eru 55 einingar
  • Lágmark á 3. þrepi eru 50 einingar

Lokamarkmið Opinnar stúdentsbrautar eru:

Að nemendur

  • séu undirbúnir fyrir virka þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi
  • hafi öðlast virka meðvitund gagnvart umhverfi sínu, lært að njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
  • búi yfir frumkvæði, skapandi hugsun og sjálfstæði
  • hafi hæfni til að tjá sig og eiga samskipti á íslensku og erlendum tungumálum
  • séu vel undirbúnir fyrir frekara nám
  • séu læsir á sjálfa sig og umhverfi sitt
  • geti notað þekkingu sína og færni við lausn fjölbreyttra verkefna í lífi og starfi

Hér má finna allar áfangalýsingar skólans

Kjarni         1. þrep 2. þrep 3. þrep ein.
DANS2TL05 DANS2LT05         10   10
ENSK2OT05 ENSK2TM05 ENSK3EX051 ENSK3HÁ051 ENSK3MB051   10 10 20
ÍSLE2MR05 ÍSLE2ED05 ÍSLE3NB052 ÍSLE3NJ052 ÍSLE3ÖL052   10 10 20
LÝÐH1HN01 LÝÐH1VN01 LÝÐH1HR01 LÝÐH1HR01 LÝÐH1HR01 5     5
FRAM1AA033 FRAM1AB03 FRAM2AA03 FRAM2AB03   6 6   12
STÆR2LF03 STÆR2FL02 STÆR2HL05 STÆR3TF054     10 5 15
SPÆN1BY05 SPÆN1SP05 SPÆN1ÞR05     15     15
NÁTT2GR05           5   5
UMHV2UN05           5   5
FÉLAGSGREIN5           5   5
Samtals:         26 61 25 112

1) Velja þarf tvo af þremur áföngum á 3. þrepi í ensku og nemendur ráða í hvaða röð þeir taka þá; 2) Velja þarf tvo af þremur áföngum á 3. þrepi í íslensku og nemendur ráða í hvaða röð þeir taka þá; 3) FRAM er áfangi þar sem unnið er með framtíðarfærni s.s. tölvufærni, vinnulag, samskipti, fjármálalæsi og gagnrýna hugsun; 4) Velja má annan áfanga í stærðfræði á 3. þrepi; 5) Velja þarf einn áfanga í félagsfræði, heimspeki, sögu eða sálfræði sem hluta af kjarna.

Kjörsvið         1. þrep 2. þrep 3. þrep ein.
HEST1HE05 HEST2FB05       5 5    
HEST1HV05 HEST2FV05       5 5    
HEST2VN04 HEST2VN06 HEST2VU04  HEST2VV06 HEST2VN03   23    
Samtals:               43

Allir áfangarnir sem eru tilgreindir á hestakjörsviði eru skylduáfangar. HE og FB eru bóklegir áfangar. HV og FV eru verklegir.

Frjálst val ein.
Valáfangar eru til dæmis kjörsviðsgreinar annarra brauta og listgreinar.  
Sjá áfangalýsingar á vef skólans.  
Samtals: 45

Samtals einingar á braut: 200

Gildir frá 1. ágúst 2024

Síðast breytt: 14. ágúst 2024