Deildarstjóri íslenskubrautar

  • sinnir faglegu starfi með kennurum brautar og skipuleggur fundi
  • skipuleggur fundi með nemendum og forráðafólki þeirra áður en nám á brautinni hefst og eftir þörfum á námstímanum
  • ber ábyrgð á daglegu starfi á brautinni, fylgist með skólagöngu nemenda og leiðbeinir þeim um mál sem snúa að námi þeirra og gengi í skólanum
  • hefur umsjón með matsferli og röðun í áfanga
  • vinnur með aðilum innan skólans vegna farsældarþjónustu
  • vinnur með stjórnendum að brautaskipulagi
  • stýrir samræmingu i vali á námsefni
  • annast samskipti við kennara í öðrum skólum, fagaðila stofnana og teymi sem vinna að málefnum nemenda af erlendum uppruna

Síðast breytt: 28. janúar 2025