Vefstefna FMOS

Vefstefna FMOS nær yfir allt efni sem birt er á vefsvæði skólans og á samfélagsmiðlum. Vefur skólans skal vera í anda stefnu skólans og í samræmi við lög sem skólinn starfar eftir. Öllum sem vinna efni fyrir vef skólans og samfélagsmiðla ber að fylgja stefnunni í einu og öllu.

Markmið með rekstri vefsins er að:

  • Veita trausta stafræna þjónustu
  • Miðla upplýsingum um starfsemi skólans
  • Auka vitund um starfsemi skólans
  • Laða nýja nemendur að skólanum
  • Styðja nemendur við val á námi
  • Tryggja að upplýsingar og þjónustu sé hægt að finna með einföldum hætti
  • Tryggja samrýmda ásýnd
  • Tryggja að vefurinn sé alltaf aðgengilegur og tenglar virkir

Útlit vefsvæðis skólans skal vera samræmt og mynda heildstæða umgjörð. Litir í merki skólans eru notaðir á vefnum og skal allt framsett efni endurspegla það. Myndir skulu fylgja öllum fréttum og tilkynningum á vefnum.

Málfar skal vera vandað og auðskiljanlegt. Ritstjóri les yfir efni sem sett er á vefinn og leiðréttir ef eitthvað misferst í framsetningu. Efni sem sett er á samfélagsmiðla (Facebook og Instagram) er óformlegra en alltaf skal vanda til verka.

Stjórnendur, verkefnastjóri og náms- og starfráðgjafi hafa ritstjórnaraðgang að vefnum. Aðrir starfsmenn, sem vilja birta efni á vefnum, senda það til einhvers af þessum aðilum sem sér um að birta efnið.

Myndatökur og dreifing mynda af fólki í skólanum er ekki leyfð nema með samþykki viðkomandi (munnlegu eða skriflegu). Hópmyndir af viðburðum á vegum skólans eru þó leyfðar, en einstaklingar geta alltaf beðið stjórnendur um að myndir af þeim séu ekki birtar.

Ákvarðanir um breytingar á vef skólans og uppfærslum skulu teknar í samráði við vefstjóra. Óheimilt er að reka sjálfstæð vefsvæði í nafni skólans utan skipulags sem þessi vefstefna tekur til.

Vefstefnuna skal endurskoða reglulega og ekki sjaldnar en á þriggja ára fresti.