Endurskiladagur og úrvinnsludagur

Nú er komið að seinni endurskiladegi haustannar 2024 en hann verður þriðjudaginn 19. nóvember. Þá gefst nemendum kostur á að vinna upp ákveðin verkefni í samráði við kennara. Vinnan skal fara fram í skólanum undir handleiðslu kennara. Stundaskráin er ekki eins og venjulega því hægt verður að vinna verkefni úr áföngum sem ekki eru almennt í kennslu þennan dag. Kennarar eru í klösunum á milli kl. 10 og 14 með matarhléi kl. 12. Sumir kennarar eru þó bara annað hvort kl. 10-12 eða kl. 12-14 og munu þeir upplýsa nemendur sína um það sérstaklega. Athugið að eftir endurskiladaginn verður ekki hægt að skila verkefnum sem unnin voru fyrir viðkomandi dag.

Miðvikudaginn 20. nóvember er úrvinnsludagur og þá fellur öll kennsla niður.