TEXL2TE03 - Handverk og listsköpun úr textílefnum 2

Þessi áfangi er framhald af textíláfanga eitt og er því nokkuð svipaður þeim áfanga nema að gerð verður meiri krafa til nemenda um sjálfstæð vinnubrögð og vandvirkni. Nemendur fá að kynnast öðrum efnum, annarri tækni og fleiri aðferðum en í áfanga eitt og farið verður dýpra í alla verkefnavinnu. Verkefnin eru þó áfram fjölbreytt og nokkuð frjáls í höndum nemenda undir handleiðslu kennara. Áfram verður unnið með endurnýtingu efna og ýtt undir meðvitund nemenda um hversdagsleg efni í nærumhverfi þeirra sem hægt er að nota í listsköpun. Lögð er áhersla á öguð og vönduð vinnubrögð. Hugmyndabók fylgir nemendum sem fyrr í gegnum áfangann.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • viðfangsefnum sem lúta að samspili umhverfis, ólíkra efna og aðferða innan textíls
  • ferli frá hugmynd að fullunnu verki
  • mikilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð í handverki
  • umhverfismennt og gildi þess að endurnýta efni
  • formum, línum og hreyfingu innan listsköpunar
  • að nýta nærumhverfi í náttúrulega textíllitun
  • hversdagslegum efnum í daglegu umhverfi sem hægt er að nota í listsköpun

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • að undirbúa verkefnavinnu með eigin hugmyndafræði og aðferðum 
  • að skipuleggja eigið vinnuferli og gera uppdrætti eða skissur að verkefni
  • sjálfstæðum vinnubrögðum og vandvirkni í verkefnavinnu
  • að setja fram hugmyndir sínar á munnlegan hátt og ræða þær opinskátt
  • að nota gagnrýna hugsun á verk sín sem annarra

Hæfniviðmið

Nemendi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflar sér til að:

  • vinna með hugmyndir sínar á persónulegan hátt og sýna sjálfstæði
  • sýna frumkvæði að verkefnum og verkefnavali
  • beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræðni og frumleika við lausnir vinnu sinnar
  • geta opnað augun fyrir hinum hversdagslegu hlutum í umhverfinu og nýtt þá í listsköpun
  • vera meðvitaður um mikilvægi umhverfisverndar og endurnýtingu efna í listsköpun og handverk