TEXL1TE03 - Handverk og listsköpun úr textílefnum 1

Þessi áfangi er frekar óhefðbundinn þar sem unnið verður með hin og þessi textílefni í listsköpun og handverki. Nemendur fá að spreyta sig á ólíkri tækni, aðferðum og efnum í vinnu sinni og verkefni eru fjölbreytt og skemmtileg. Verkefnin verða nokkuð frjáls í höndum nemenda og innihalda meðal annar boli, klúta, púða, töskur, óróa, körfur, tuskudýr og aðra nytjahluti en einnig hluti sem hafa fagurfræðileg gildi eins og vegglistaverk, myndverk og skúlptúra. Reynt verður eftir fremsta megni að nota endurnýtanleg efni í verkefnavinnu nemenda til að koma í veg fyrir sóun og ýta undir meðvitund um umhverfisvernd og sjálfbærni. Lögð verður áhersla á vönduð og sjálfstæð vinnubrögð, þjálfun í gagnrýnni hugsun og frumlega og skapandi hugmyndafræði. Í gegnum áfangann munu nemendur nota hugmyndabók þar sem þeir skrá niður þau verkefni og hugmyndir sem upp koma yfir önnina. Nemendur læra að virkja sköpunarkraftinn í sjálfum sér og temja sér aðferðir til að skynja umhverfi sitt og nýta það til listsköpunar. 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • mynsturgerð og meðferð mynstra
  • formum, línum og hreyfingu innan listsköpunar
  • viðfangsefnum sem lúta að samspili umhverfis, ólíkra efna og aðferða innan textíls
  • ferli frá hugmynd að fullunnu verki
  • gildi lita og notkun þeirra í umhverfi okkar
  • mikilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð í handverki
  • umhverfismennt og gildi þess að endurnýta efni

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • notkun hugmyndabókar og skráningu hugmynda
  • að skipuleggja eigið vinnuferli og gera uppdrætti eða skissur að verkefni
  • sjálfstæðum vinnubrögðum og vandvirkni í verkefnavinnu
  • að skapa mynstur og raða þeim saman á mismunandi hátt með hjálp ólíkra aðferða  
  • að setja fram hugmyndir sínar á munnlegan hátt og ræða þær opinskátt
  • að vinna með endurnýtanleg efni í listsköpun

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta hæfni sína í listræna vinnu og sköpun
  • vinna með hugmyndir sínar á persónulegan hátt og sýna sjálfstæði
  • sýna frumkvæði að verkefnum og verkefnavali
  • beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræðni og frumleika við lausnir vinnu sinnar
  • geta opnað augun fyrir hinum hversdagslegu hlutum í umhverfinu og nýtt þá í listsköpun
  • vinna með efni úr nánasta umhverfi
  • þroska færni sína og skilning á listsköpun og handverki
  • vera sjálfbær og tileinka sér umhverfisvæna hugsun í listsköpun og handverki