STSÉ1SM02 - Fjölbreytni starfa og menntun
Í áfanganum verða skoðuð störf á vinnumarkaði og kynntir fjölbreyttir vinnustaðir, tilgangur starfa og mikilvægi þeirra í tengslum við önnur störf. Skoðaðar verða ólíkar kröfur sem gerðar eru til starfsfólks í ólíkum störfum og hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að öðlast réttindi í tilteknum atvinnugreinum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum vinnustöðum
- mismunandi kröfum sem gerðar eru til starfsfólks í ólíkum störfum
- hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til að öðlast réttindi í ákveðnum atvinnugreinum
- möguleikum hans til frekara náms
- tilgangi starfa og mikilvægi þeirra í tengslum við önnur störf
- þeim reglum og kröfum sem tilheyra ákveðnum störfum.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- meta möguleika sína varðandi nám og atvinnu
- leita að og nýta sér upplýsingar um nám og störf
- sækja sér upplýsingar um áhugaverð starfsheiti
- flokka fyrirtæki eftir starfsemi þeirra
- beita fjölbreyttu verklagi og vinna eftir skipulagi
- bera ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir mismunandi atvinnugreinum
- meta þau atriði sem taka ber tillit til við starfsval
- þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem felst í þeim
- átta sig á mismunandi kröfum sem liggja að baki ólíkra starfa
- meta möguleika sína hvað varðar nám, atvinnu, búsetu og áhugamál.