STSÉ1KJ02 - Kjaramál

Í áfanganum er fjallað um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Helstu stéttarfélög og hlutverk þeirra eru kynnt. Jafnframt er farið yfir skattamál og skyldur launþega og vinnuveitenda. Áfanginn er liður í að efla réttarvitund nemenda.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • réttindum, ábyrgð og skyldum launþega og vinnuveitenda
  • hlutverki stéttarfélaga
  • kjaramálum
  • skattamálum
  • að launakjör eru mismunandi eftir starfshlutfalli og ráðningarsamningum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nálgast upplýsingar um réttindi og skyldur á vinnumarkaði
  • vera meðvitaður um eigin réttindi og skyldur á vinnumarkaði
  • þekkja viðeigandi hugtök og heiti sem tengjast atvinnuþátttöku og atvinnulífinu
  • nálgast og lesa launaseðla.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta tekið þátt í umræðum um kjaramál, réttindi og skyldur á vinnustað
  • þekkja helstu samtök launafólks í eigin starfsumhverfi
  • þekkja hlutverk stéttarfélaga
  • nota viðeigandi hugtök og heiti er tengjast viðfangsefni áfangans
  • geta nýtt sér upplýsingar sem koma fram á launaseðli.