STEF3LÚ05 - Lífið eftir útskrift
Í áfanganum er lögð áhersla á sjálfsskoðun í víðu samhengi. Unnið er með verkfæri sem gerir nemandanum kleift að ígrunda hugmyndir um framtíðina hvort sem er í námi, starfi eða einkalífi. Í ferðalagi nemenda um hugarheiminn er ætlast til að þeir ígrundi hlutverk sitt í lýðræðis- og jafnréttissamfélagi og hvernig það hlutverk hefur áhrif á ákvarðanatöku, hugmyndir, gildi, markmið og samskipti. Unnið er með helstu hugmyndir í náms- og starfsvali, verkefnastjórnun og leiðtogafærni. Horft er á efnið út frá fjölbreyttum sjónarhornum þar sem lögð er áhersla á lýðræði, jafnrétti og mannlegt atferli.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- viðfangsefni leiðtogafærni og stefnumótunnar
- greiningartólum á borð við SVÓT og SMART
- hugtökum samtalstækni
- aflfræði hópa og áhrif samfélagsins á samskipti
- hugtökum/aðferðum sem tengjast hugmyndavinnu og nýsköpun
- hvar og hvernig megi leita að námi/starfi hérlendis og erlendis
- fræðunum á bakvið áhugakannanir
- hugtökum á borð við gildi, markmið og leiðtogafærni og mikilvægi þeirra til að móta skýra framtíðarsýn
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér leiðtogafærni í leik og starfi
- þróa með sér samtalstækni á gagnrýninn hátt
- framkvæma SVÓT greiningu
- setja fram SMART markmið
- ræða á gagnrýninn máta um eðli hópastarfs og hlutverk hvers og eins innan hóps
- búa til náms- og starfsferilskrá
- geta lesið úr niðurstöðum áhugakannana og nýtt niðurstöður í leit að námi og/eða starfi
- undirbúa sig fyrir atvinnuviðtal
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja nám og/eða starfsvettvang sem hentar áhugasviði hvort sem er hérlendis eða erlendis
- nýta þau verkfæri sem notuð eru í áfanganum til þess að setja fram persónulega stefnumótunaráætlun þar sem sérstaklega er horft til gilda, markmiða og framtíðarsýnar með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi
- auka færni sína í samtalstækni í leik og starfi
- þróa hugmynd frá grunni með verkfærum verkefnastjórnunar og finna leiðir til þess að koma henni í framkvæmd