Þessi áfanginn leggur áherslu á að vinna með mælingar líkt og þyngd, lengd, flatarmál, ummál og rúmmál. Nemendur læra að nýta sér metrakerfið við verkefnin. Markmið áfangans er að verkefnin geti m.a. nýst nemendum á ferðalögum, við matreiðslu og mælingar í nánasta umhverfi.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mælingum
- metrakerfinu og samhenginu milli eininga í mælikvörðunum
- meðferð hjálpartækja (síma, tölvu, vasareiknis)
- að finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
- ýmsum spilum og þrautum.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota algeng stærðfræðitákn
- vinna með tölur á fjölbreyttan hátt
- beita grunnreikniaðgerðum (samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu)
- nota hjálpartæki (síma, tölvu, vasareikni, forrit)
- beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
- setja fram tölulegar upplýsingar og skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
- temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
- tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
- nýta þau hjálpartæki sem bjóðast við stærðfræði daglegs lífs.