STÆS1BR02 - Almenn brot og tugabrot
Helsta markmið áfangans er að byggja ofan á þekkingu nemenda á almennum brotum og tugabrotum. Nemendur nota tölvu og vasareikni við verkefnavinnu ásamt verkefnum í Stoðkennaranum. Í áfanganum er lagður grunnur að skipulögðum vinnubrögðum, röksemdafærslu og nákvæmni í framsetningu við lausn verkefna í stærðfræði.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- almennum brotum
- tugabrotum
- meðferð hjálpartækja
- að finna mismunandi aðgerðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
- spilum í spilastokki
- ýmsum spilum og þrautum.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota algeng stærðfræðitákn
- vinna með tölur á fjölbreyttan hátt
- beita grunnreikniaðgerðum (samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu)
- nota hjálpartæki
- beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
- setja fram tölulegar upplýsingar og skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
- temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
- tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
- nýta þau hjálpartæki sem bjóðast við stærðfræði daglegs lífs.