Áfanginn byggir á því að nemendur læra að halda utan um fjármálin sín og skoða til þess ólíkar leiðir. Markmiðið er að nemendur öðlist yfirsýn yfir eigin neyslu.
Þekkingarviðmið
- heimilisbókhaldi
- Excel
- meðferð hjálpartækja (síma, tölvu, vasareiknis)
- að finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
- ýmsum spilum og þrautum.
Leikniviðmið
- nota algeng stærðfræðitákn
- vinna með tölur á fjölbreyttan hátt
- beita grunn reikniaðgerðum (samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu)
- nota hjálpartæki (síma, tölvu, vasareikni, forrit)
- beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt.
Hæfnisviðmið
- finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
- setja fram tölulegar upplýsingar og skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
- temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
- tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
- nýta þau hjálpartæki sem bjóðast við stærðfræði daglegs lífs.