STÆR3TF05 - Ályktunartölfræði

Líkindareikningur: Helstu líkindadreifingar og útreikningar tengdir þeim. Tölfræði : Fylgnihugtakið, ályktunartölfræði, grunnatriði úrtaksfræði. Megin markgildissetning tölfræðinnar. Tilgátur og prófanir. Framsetning gagna með sérhæfðum tölfræðiforritum og töflureiknum. Nemendur velja sér rannsóknarefni sem þeir skoða í grunninn. Þeir nýta sér alla lærdómsþætti áfangans til að gera rannsóknarefni sínu skil.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • algengustu líkindadreifingum
  • fylgnihugtakinu
  • ályktunartölfræði
  • öryggisbil
  • framsetningu tilgáta og prófana á þeim
  • öflun tölfræðilegra upplýsinga
  • notkun framangreindrar stærðfræði við að svara hagnýtum spurningum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta einfalda líkindadreifingu við útreikning líkinda
  • túlka fylgnistuðla
  • nota hugtökin öryggisbil og öryggismörk 
  • setja fram tilgátur og prófa þær
  • framkvæma Z-próf 
  • nýta tölfræðileg forrit við vinnslu og framsetningu tölfræðilegra gagna 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
  • takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga