STÆR2LF03 - Föll og ferlar - línur og fleygbogar
Í þessum upphafsáfanga verður lögð megináhersla á fallahugtakið og ýmsar gerðir falla og ferla skoðaðar. Farið verður í skilgreiningu línu og notkun breyta og það notað við lausnir á jöfnuhneppum . Fleygbogar verða krufðir til að finna rætur og útgildi. Við lausn allra verkefna verður mikið stuðst við tölvuforrit.
Þekkingarviðmið
- undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. og 2. stigs jöfnum,
- grunnatriðum og stærðfræðiforritsins Geogebru
- beinum línum, fleygbogum og skurðpunktum ferla
- fallahugtakinu
- margliðum; þáttun, núllstöðvum
Leikniviðmið
- lýsa sambandi tveggja breyta á myndrænan hátt
- nota forrit til að leysa ýmis reikningsleg viðfangsefni
- leysa 1. og 2. stigs jöfnur
- lýsa raunverulegum fyrirbrigðum með notkun falla
Hæfnisviðmið
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga