STÆR2FL02 - Föll og ferlar - fleygbogar
Í þessum áfanga er haldið áfram að fjalla um fallahugtakið og ýmsar gerðir falla og ferla. Fleygbogar verða krufðir til að finna rætur og útgildi. Keilusnið verður kynnt, sérstaklega í sambandi við fleygboga. Við lausnir verkefna verður meðal annars stuðst við tölvuforrit.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. og 2. stigs jöfnum
- grunnatriðum stærðfræðiforrita
- fleygbogum
- fallhugtakinu
- margliðum; þáttum; núllstöðvum og útgildum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lýsa sambandi tveggja breyta á myndrænan hátt
- nota forrit til að leysa ýmis reikningsleg viðfangsefni
- leysa 1. og 2. stigs jöfnur
- lýsa raunverulegum fyrirbrigðum með notkun falla
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
- takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga