STÆR1UN03 - Algebra og rúmfræði
Áfanginn er fyrir þá sem ekki hafa náð lágmarkseinkunn í stærðfræði við lok grunnskóla. Farið verður yfir: Tölur, stæður, 1. stigs jöfnur, algebru, rúmfræði og hnit. Notkun vefsíða við lausn sumra stærðfræðilegra verkefna.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- talnameðferð, almennum brotum og tugabrotum, frumtölum og deilanleika
- prósentu og hlutfallareikningi
- undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. stigs jöfnum með einni óþekktri stærð, forgangsröð aðgerða og heiltöluveldi
- flatarmáli og rúmmáli algengra forma
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita helstu aðgerðum á heilar tölur og nota víxlreglu, tengireglu og dreifireglu í talnareikningi
- breyta milli tugabrota og almennra brot og deilanleika
- beita veldareglum
- setja fram svör með viðeigandi nákvæmni
- reikna prósentur, finna hlutföll milli stærða
- forgangsraða aðgerðum, nota sviga og heiltöluveldi í algebru, og leysa jöfnur með einni óþekktri stærð
- beita formúlum og jöfnum við að reikna rúmmál og flatarmál
- tjá sig munnlega og skriflega á stærðfræðilegan hátt
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
- takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga