SPÆN1ÞR05 - Rómanska-Ameríka, samskipti og menning
Viðfangsefni fyrri áfanga er rifjað upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tjáningu, hlustun og ritun þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu og sögu Rómönsku Ameríku. Textar verða smám saman lengri og þyngri og nemendur eru þjálfaðir meira í að lesa rauntexta á spænsku. Orðaforði er aukinn, nemendur þjálfast í nýjum málfræðiatriðum og áfram er unnið með grundvallarþætti spænska málkerfisins. Frásagnir í nútíð og þátíð eru æfðar munnlega og skriflega og þurfa nemendur í auknum mæli að tjá sig munnlega í tímum. Nemendur læra m.a. að tala um áhugamál sín, heilsu, koma sér saman um að hitta einhvern, kynnast orðaforða um mat og orðaforða sem þarf til að tjá sig á spænsku á veitingastað. Einnig eru þátíðarform spænskunnar æfð m.a. í tengslum við æviágrip og ferðalög. Í þessum áfanga er einnig aðeins farið í sögu, landafræði og menningu Rómönsku Ameríku. Nemendur þjálfast í að lesa sögur og ævintýri á spænsku og þjálfast í að skrifa slíka texta í þátíð. Stuðst verður við fjölbreyttar kennsluaðferðir þar sem tekið er mið af markmiðum áfangans. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á spænsku í töluðu og rituðu máli á fjölbreyttan og skapandi hátt. Í áfanganum er ummið með fjölbreytt efni svo sem gagnvirkar æfingar, tónlist, myndbönd og leiki sem stuðlar að auknum skilningi á menningarheimi spænskumælandi þjóða og eflir menningarlæsi nemenda. Áhersla er lögð á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
- grundvallarþáttum spænsks málkerfis
- menningu, mannlífi og helstu samskiptavenjum og siðum spænskumælandi þjóða
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- fylgjast með frásögnum eða samtölum um almenn efni eða sérhæfðari málefni sem hann þekkir, þar sem talað er skýrt og áheyrilega
- lesa og skilja ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um almennt og sérhæfðara efni sem fjallað er um í áfanganum og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum hverju sinni
- fylgja söguþræði í einföldum eða einfölduðum bókmenntatextum
- taka þátt í almennum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
- segja frá á skýran hátt í nútíð og þátíð
- skrifa samfellda texta um ýmis efni sem hann þekkir, t.d. mannlýsingar, lýsingar á stöðum, atburðum og umhverfi og geta betur en áður, dregið ályktanir og tjáð eigin skoðanir
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
- tjá sig í mæltu og rituðu máli, sýna fram á skilning á formgerð og byggingu texta og sé meðvitaðri en áður um muninn á þessum málsniðum
- fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál og nota viðeigandi málfar.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fylgjast með frásögnum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er mjög kunnuglegt
- afla sér ýmissa upplýsinga úr mæltu og rituðu máli, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í námi og starfi
- tileinka sér aðalatriðin í stuttum og/eða einföldum rauntextum af ýmsu tagi og geta dregið ályktanir af því sem hann les
- lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína á einföldu máli
- takast á við algengar aðstæður í almennum samskiptum og geta almennt bjargað sér á málinu
- segja frá eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
- miðla á einfaldan hátt efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á í ræðu og riti
- skrifa um hugðarefni sín og áhugamál, ýmis málefni og atburði, ímyndaða eða raunverulega, í þátíð og nútíð
- skrifa samantekt byggða á tilteknu efni, s.s. kvikmynd, blaðagrein, eða sögu.