SPÆN1SP05 - Spánn, menning og ferðalög

Viðfangsefni upphafsáfangans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tjáningu,  hlustun og ritun þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu og sögu Spánar. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Nemendur þurfa í auknum mæli að tjá sig munnlega og textar verða smám saman lengri og þyngri. Nemendur læra að versla og fá og miðla upplýsingum um verð, spyrja og vísa til vegar, staðsetja sig, lýsa ólíkum borgum, tjá sig um áhugamál sín, gefa og þiggja ráð og tjá sig um framtíðaráform og um atburði í núliðinni tíð. Stuðst verður við fjölbreyttar kennsluaðferðir þar sem tekið er mið af markmiðum áfangans. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á spænsku í töluðu og rituðu máli, á fjölbreyttan og skapandi hátt. Í áfanganum er unnið með fjölbreytt efni, svo sem gagnvirkar æfingar, tónlist, myndbönd og leiki, sem stuðlar að auknum skilningi á menningarheimi spænskumælandi þjóða og eflir menningarlæsi nemenda. Áhersla er lögð á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
  • grundvallarþáttum spænsks málkerfis: framburði, áherslu og einfaldri setningaskipan
  • menningu og siðum spænskumælandi þjóða
  • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu mál.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja talað mál um kunnuleg efni þegar talað er skýrt, t.d. einfaldar leiðbeiningar, fyrirmæli og stuttar frásagnir
  • lesa einfalda texta af ýmsu tagi í nútíð, náinni framtíð og núliðinni tíð, og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
  • afla sér einfaldra hagnýtra upplýsinga og taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir með því að beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
  • skrifa stutta texta í nútíð, náninni framtíð og núliðinni tíð, svo sem samtöl, skilaboð, einfaldar lýsingar, leiðarlýsingar og um atburði
  • geta sagt frá og lýst liðnum atburðum og reynslu í stuttu máli
  • nota meginreglur í spænskri málfræði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja talað mál um kunnuglegt efni
  • tileinka sér aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum sem innihalda algengan orðaforða og geta dregið ályktanir af því sem hann les
  • tjá sig munnlega við tilteknar aðstæður í samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
  • miðla efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á, á fjölbreyttan og skapandi hátt, m.a. með notkun upplýsingatækni.
  • skrifa einfalda texta um hugðarefni sín, áhugamál og atburði, ímyndaða og raunverulega