SPÆN1BY05 - Dagleg samskipti og nánasta umhverfi

Áfanginn er upphafsáfangi og er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur byggja upp orðaforða um sitt nánasta umhverfi og þjálfast í hlustun, ritun, lestri og tjáningu. Markmiðið er að nemendur geti sagt frá sér, sínu nánasta umhverfi og áhugasviði, byggi upp orðaforða því tengt og noti til þess grunnatriðin í spænskri málfræði. Stuðst verður við fjölbreyttar kennsluaðferðir þar sem tekið er mið af markmiðum áfangans. Áhersla verður lögð á fjölbreytta og skapandi verkefnavinnu og að nemendur tjái sig sem mest á spænsku í töluðu og rituðu máli. Í áfanganum er unnið með fjölbreytt efni, svo sem gagnvirkar æfingar, tónlist, myndbönd og leiki, sem stuðlar að auknum skilningi á menningarheimi spænskumælandi þjóða og eflir menningarlæsi nemenda.  Áhersla er lögð á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
  • grundvallarþáttum spænsks málkerfis: framburði, áherslu og einfaldri setningaskipan
  • grunnatriðum í spænskri málfræði
  • menningu og siðum spænskumælandi landa

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja einfaldað talað mál þegar talað er skýrt og greinilega
  • lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða um efni sem hann þekkir og tileinka sér ný orð 
  • nota grunnreglur í spænskri málfræði
  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
  • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
  • segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni og athöfnum og atburðum daglegs lífs með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
  • skrifað stuttan samfelldan texta um efni sem unnið hefur verið

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka þátt í einföldum samræðum og nota mismunandi kveðjur og samskiptaform eftir aðstæðum
  • segja frá persónulegum högum sem og einföldum staðreyndum um kunnugleg efni
  • beita mismunandi aðferðum til að skilja einfalda texta
  • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
  • auka meðvitund um eigin leiðir til að tileinka sér tungumálið.
  • rita spænsku í mjög einföldu formi
  • miðla efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á, á fjölbreyttan og skapandi hátt, m.a. með notkun upplýsingatækni