SÁLF3PF05 - Félags- og persónuleikasálfræði
Í þessum áfanga er fjallað um tvær undirgreinar sálfræðinnar; félags- og persónuleikasálfræði. Teknar eru fyrir ólíkar skilgreiningar á persónuleikahugtakinu. Mismunandi kenningar um mótun og eðli persónuleikans eru kynntar. Nemendur vinna með persónuleikapróf og verkefni þar sem þeir skoða sig út frá kenningum um persónuleikann og sjálfsmyndina. Í áfanganum er meðal annars farið í áhrif hópa og af hverju fólk breytir viðhorfum og atferli við mismunandi aðstæður. Kynntar eru rannsóknir á hlýðni og hvað hefur áhrif á hana. Nemendur framkvæma ýmis konar tilraunir sem tengjast grunnhugtökum félagssálfræðinnar.
Þekkingarviðmið
- nýjustu hugmyndum innan greinarinnar
- sérsviði innan sálfræðinnar
- sértækum hugtökum og kenningum
- framlagi greinarinnar til samfélagsins.
Leikniviðmið
- leggja sjálfstætt mat á ólíkar kenningar um persónuleikann
- gagnrýna og meta mismunandi persónuleikapróf
- fjalla um og bera saman kenningar um persónuleikann og sjálfsmyndina
- nýta sér fræðilegan texta um sálfræði á íslensku og ensku
- miðla á skýran og hlutlægan hátt fræðilegu efni
- nýta fræðilegar heimildir á sviðinu.
Hæfnisviðmið
- geta myndað sér skoðanir sem byggjast á gagnrýnni hugsun og tekið þátt í umræðum um sálfræði
- tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
- sýna frumkvæði í námi
- geti beitt öguðum vinnubrögðum, tekið ábyrgð á námi og unnið í samvinnu við aðra
- vinna úr og leggja mat á rannsóknargögn.