SÁLF3KV05 - Kvikmyndasálfræði
Nemendur kynnast sálfræðilegum veruleika (vandamálum og lausnum) úr frá myndefni (kvik- eða fræðslumyndum). Vandlega er farið í kvikmyndir sem taka sérstaklega á ákveðnum sálfræðilegum viðfangsefnum. Ákveðnar myndir eru skoðaðar og nemendur vinna síðan rannsóknarvinnu til að meta sanngildi þeirra sálfræðilegu þátta sem koma fram í myndunum. Dæmigerð viðfangsefni eru ýmsar geðraskanir, sálfræðileg meðferðarúrræði, þroski, þroskafrávik, félagsmótun, kynhlutverk, staðalmyndir, fordómar, viðhorf, múgæsingur, hlýðni við yfirvöld og hópar svo eitthvað sé nefnt
Þekkingarviðmið
- helstu kvikmyndum sem taka á sálfræðilegum málum
- nokkrum helstu tegundum kvikmynda og þeirri sálfræði sem þar er á bakvið
- á umfangi þess vandamáls sem kennt er hverju sinni.
Leikniviðmið
- greina sálfræðileg viðfangsefni í kvikmyndum
- bera kvikmyndir saman út frá sálfræðilegri nálgun þeirra
- finna fleiri kvikmyndir sem kynna sama þema og tekið er fyrir í áfanganum
- gagnrýna það hvernig kvikmyndir mistúlka sálfræðileg viðfangsefni.
Hæfnisviðmið
- vega og meta það sem er rétt og rangt um sálfræðileg viðfangsefni í kvikmyndum
- meta sérstöðu kvikmyndamiðilsins
- aðgreina ólíkar kvikmyndir út frá nokkrum grundvallaratriðum.