SAGA2NT05 - 19. og 20. öldin
Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í Íslands- og mannkynssögu á 19. og 20. öld. Þættirnir eru valdir af nemendum og kennara og spilar áhugi nemenda því stórt hlutverk. Samhliða verður lögð áhersla á gagnrýna hugsun og hvernig á að leita heimilda, meta þær og nýta. Það er sérstaklega mikilvægt með tilliti til þess upplýsingamagns sem hefur orðið til á tímabilinu. Í áfanganum er kennslubókin ákveðið grunnefni sem er afar mikilvægt að nemendur lesi til þess að öðlast ákveðinn grunn. Dýpt er fengin með vinnunni í kennslustundum þar sem farið verður í stór og smá verkefni sem krefjast meðal annars sjálfstæðra vinnubragða og heimildaleitar. Nemendur vinna þessi verkefni jafnt einir og með samnemendum þar sem allir þurfa að bera jafn mikla ábyrgð á vinnunni. Fjölbreyttar matsaðferðir stuðla að því. Mikil áhersla er lögð á að nemendur kynnist mismunandi tegundum heimilda og læri að leggja mat á þær með gagnrýnni hugsun. Við verkefnavinnuna er lögð áhersla á að nemendur kafi djúpt ofan í viðfangsefnin sem verða fyrir valinu. Jafnframt kynnast nemendur kostum og göllum ólíkra miðlunarforma sögulegs fróðleiks með því að spreyta sig á þeim. Sú vinna markast af tímabilinu sem verður til umfjöllunar. Nálægðin í tíma veitir nemendur kost á fjölda heimildategunda til að leita í og verkefni munu bera keim af því og kynna nemendur fyrir flóru heimildanna. Ábyrgð nemenda á eigin námi er mikil og er eðli verkefnanna í lykilhlutverki í því.
Þekkingarviðmið
- völdum þáttum í Íslands- og mannkynssögu á 19. og 20. öld
- mikilvægi gagnrýninnar hugsunar
- undirstöðuatriðum sagnfræði sem fræðigreinar
- mismunandi tegundum heimilda
- því hvað hefur haft áhrif á það hvernig samfélagið er sem við búum í.
Leikniviðmið
- geta aflað sér fjölbreyttra heimilda um mismunandi viðfangsefni
- meta gildi og áreiðanleika ólíkra heimilda
- nota heimildir á viðurkenndan hátt
- nýta frumheimildir og eftirheimildir í verkefnavinnu
- beita gagnrýninni hugsun og rökstyðja skoðanir sínar
- nota ólík miðlunarform til að koma á framfæri sögulegum fróðleik
- lesa sagnfræðilega texta og túlka þá
- vinna með öðrum að sameiginlegu markmiði þar sem allir bera jafna ábyrgð.
Hæfnisviðmið
- geta beitt gagnrýninni hugsun á markvissan hátt
- geta tjáð sig um sagnfræðileg efni
- geta myndað eigin skilning á sögunni og því hvernig hún hefur áhrif á samfélagið sem við búum í
- geta komið sínum skoðunum á sögunni á framfæri á markvissan og rökstuddan hátt
- geti notað viðurkenndar aðferðir til að setja hugðarefni sín fram.