SAGA2FR05 - Frá upphafi til byltinga
Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í Íslands- og mannkynssögu frá upphafi sögulegs tíma fram að lokum 19. aldar. Samhliða er lögð áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í verklagi sagnfræði sem fræðigreinar með megináherslu á notkun heimilda. Í áfanganum er kennslubók lögð til grundvallar sem ákveðinn grunnur en nemendur öðlast ákveðna dýpt í hverjum þætti með heimildaleit og verkefnavinnu sem henni tengist. Nemendur velja í samráði við kennara þau viðfangsefni sem verða til umfjöllunar úr kennslubókinni hverju sinni auk þess að hafa mikið val í lokaverkefnum hvers þáttar. Mikil áhersla er lögð á að nemendur kynnist mismunandi tegundum heimilda og læri að leggja mat á þær með gagnrýnni hugsun. Innan hvers þáttar verða sérhæfð verkefni unnin þar sem reynir á sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu við aðra nemendur. Við verkefnavinnuna er einnig lögð áhersla á að nemendur kafi djúpt ofan í viðfangsefnin sem verða fyrir valinu og geti nýtt sér þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér til að geta miðlað henni á frumlegan, fjölbreyttan og skapandi hátt í gegnum ólík miðlunarform sem nemendur velja sér sjálfir. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur taki ábyrgð á eigin námi og geti metið eigið framlag og annarra á uppbyggilegan hátt með fjölbreyttum matsaðferðum.
Þekkingarviðmið
- völdum þáttum í Íslands- og mannkynssögu frá upphafi sögulegs tíma allt til ársins 1900
- helstu hugtökum og persónum sem koma við sögu
- mikilvægi gagnrýninnar hugsunar
- undirstöðuatriðum sagnfræði sem fræðigreinar með megináherslu á heimildanotkun
- mismunandi tegundum heimilda
- tengslum hugmynda við samfélagið sem við búum í.
Leikniviðmið
- geta aflað sér fjölbreyttra heimilda um mismunandi viðfangsefni
- nota heimildir til þess að miðla sögulegu efni á fjölbreyttan og skapandi hátt
- meta gildi og áreiðanleika heimilda
- vinna jafnt sjálfstætt og með öðrum að verkefnum
- beita gagnrýninni hugsun
- meta eigið framlag og framlag annarra með fjölbreyttum aðferðum.
Hæfnisviðmið
- geta miðlað sögulegum fróðleik á áhugaverðan og fjölbreyttan hátt
- geta beitt gagnrýninni hugsun á markvissan hátt
- geta borið saman ólík miðlunarform sögulegs fróðleiks
- geta unnið með öðrum að sameiginlegu markmiði
- geta tengt hugmyndir frá ýmsum tímabilum við eigið samfélag.