MAME2MM05 - Matur og menning
Í áfanganum verður fengist við matargerð með áherslu á hefðir í matarmenningu nokkurra ensku-, spænsku- og dönskumælandi landsvæða. Efnið tekur mið af hefðum í matargerð og hvers vegna ákveðnir réttir eru meira ríkjandi en aðrir. Önninni er skipt upp í mismunandi menningarsvæði og matargerð tengd þeim sem kennarar skipta með sér. Nemendur vinna menningartengd verkefni og mæta einu sinni í viku í verklegan tíma þar sem eldaður verður matur frá viðkomandi svæði. Nemendur safna að sér gögnum yfir önnina og skila inn ferilmöppu í lokin. Verkefni í ferilmöppu þurfa að vera samþykkt af kennurum til þess að vera gild til lokamats. Ætlast er til að nemendur hafi lokið grunnáföngum í tungumálunum ensku, spænsku og dönsku þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í upplýsingaöflun á þessum tungumálum sem og vinnubrögðum almennt.
Þekkingarviðmið
- mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálin eru töluð og samskiptavenjum þar
- hvernig matur tengist menningu í þeim löndum þar sem tungumálið er notað og geti tengt þau eigin samfélagi og menningu
- meðhöndlun matvæla, nýtni og hvernig mismunandi hráefnanotkun endurspegli þau svæði þaðan sem réttirnir koma
Leikniviðmið
- lesa texta tengdum matargerð og menningu
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
- greina sérkenni í matarmenningu ýmissa þjóða
- matreiða rétti frá ýmsum menningarsvæðum
Hæfnisviðmið
- afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í náminu
- nálgast matarmenningu annarra svæða með opnum huga
- útvíkka matarsmekk sinn til aukinnar lífsfyllingar