LÝÐH1HR01 - Verklegar íþróttir

Þessi áfangi er fyrir þá sem hafa lokið einu ári í framhaldsskóla og eru skrefi nær að æfa eftir eigin æfingaáætlun eða einstaklingsmiðaðri æfingaáætlun sem unnin er í samvinnu við íþróttakennara. Reynt er að koma til móts við þarfir og getu hvers og eins.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
  • hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
  • mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
  • reikna út æfingapúls fyrir brennslu- og/eða þolþjálfun
  • mæla þol, styrk og liðleika

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
  • viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu