LÝÐH1AF01 - Verklegar íþróttir
Þessi áfangi er fyrir nemendur sem stunda þjálfun undir handleiðslu þjálfara 4x eða oftar í viku og hafa það að markmiði að ná hámarksárangri í sinni íþróttagrein.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
- hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
- mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
- reikna út æfingapúls fyrir brennslu- og/eða þolþjálfun
- mæla þol, styrk og liðleika
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
- viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu