LJÓS1ÁL03 - Áhugaljósmyndun
Í áfanganum gefst nemendum kostur á að öðlast grunnþekkingu í atriðum sem snúa að ljósmyndatækni og úrvinnslu ljósmynda. Einnig gefst nemendum sem hafa nokkra reynslu og þekkingu af ljósmyndun tækifæri til að rækta áhugasvið sitt enn frekar. Jafnt er unnið með ljósmyndir sem fangaðar eru innan- sem utandyra.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnatriðum sem snúa að ljósmyndatækni
- þróunarsögu ljósmyndatækninnar
- ókeypis myndvinnsluforritum
- möguleikum sinnar stafrænu myndavélar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta fjölbreytt upplýsingaefni til þess að auka leikni sína í ljósmyndun
- nota ókeypis forrit til myndvinnslu
- nota fjölbreyttar aðferðir til að miðla myndefni sínu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fanga ólík viðfangsefni í ljósmynd
- ná fram fjölbreyttum hughrifum með myndvinnsluforritum