LISK1LG04 - Leir og gler

Áfanginn er helgaður leir og gleri. Nemendur kynnast því að vinna með steinleir og gler og ólíkum brennsluaðferðum. Þeir koma til með að gera staka hluti bæði úr leir og gleri. Nemendur hanna hlut þar sem einn hluti er úr steinleir en annar úr gleri. Síðan koma þau til með að setja leir og gler saman. Nemendur eru hvattir til að nota málma, tré og allt það efni sem hugmynd þeirra kallar á.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • efnum og tækjum sem hann notar við vinnu á gleri og leir
  • mikilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð í handverki
  • ferli frá hugmynd að fullunnu verki
  • sögu leirlistar og glerlistar innan lands og utan.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • verklegum vinnubrögðum
  • að nota og umgangast efni og tæki til leir-og glasvinnslu
  • að nota hugmyndabók til skráningu hugmynda
  • að skipuleggja eigið vinnuferli og gera uppdrætti/skissur að hugmynd sinni.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta nýtt sér hagnýt vinnubrögð í starfi og tómstundum
  • geta nýtt sér fjölbreytileika leirs og glers til sköpunar
  • geta sýnt frumkvæði að verkefnum og verkefnavali
  • beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræðni, frumleika við lausnir vinnu sinnar.