LÍSÉ1MA04 - Lífsleikni með áherslu á mannréttindi, stjórnarfar og lýðræði
Áfanginn fjallar um mannréttindi, stjórnarfar og lýðræði. Nemendur kynnast því hvaða réttindi og skyldur fylgja því að búa í lýðræðissamfélagi. Viðfangsefni áfangans eru borgaraleg réttindi, völd og áhrif einstaklinga auk þess sem samanburður er á milli stjórnarfars á Íslandi og annarra ríkja.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi sjálfstæðis og eigin ábyrgðar í lýðræðissamfélagi
- samfélagslegum gildum, siðfræði, mannréttindum og jafnrétti
- fjölbreytileika
- minnihlutahópum
- að sjónarhorn allra er jafn mikilvægt
- jafnréttisbaráttunni og áhrifum hennar
- kynbundnu ofbeldi og afleiðingum þess
- tjáningarfrelsi
- mikilvægi upplýstrar umræðu og skoðanaskipta
- gildi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- virða eigin skoðanir og annarra
- skilja að öllum rétti fylgja skyldur
- átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
- taka þátt í umræðum
- afla upplýsinga um jafnréttismál
- átta sig á birtingarmyndum mannréttinda fyrir sig sem einstakling
- leita eftir aðstoð réttindagæslumanns
- taka ábyrgð á gerðum sínum
- nýta sér fjölmiðla sér til gagns og/eða gleði
- gera grein fyrir stjórnsýslu landsins.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá og rökstyðja skoðanir sínar, tilfinningar og hugðarefni
- skilja mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
- átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna
- taka þátt í samfélagi sem er í sífelldri þróun
- skilja þá hugsun sem felst í hugtökunum lýðræði og mannréttindi
- taka þátt í lýðræðissamfélagi á virkan og ábyrgan hátt
- átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
- geta metið eigin stöðu í samfélaginu út frá mannréttindum, lýðræði og jafnrétti
- taka afstöðu til málefna sem varða fólk með fötlun í samfélaginu
- nýta sér upplýsingar frá fjölmiðlum á gagnrýnan hátt.