LÍSÉ1HE04 - Lífsleikni með áherslu á heilbrigðan lífstíl, heilsu og forvarnir
Áfanginn fjallar um heilbrigðan lífsstíl, heilsu og forvarnir. Stuðlað er að jákvæðri sjálfsmynd nemenda með því að efla sjálfstraust og trú á eigin getu. Þeir fá þjálfun í að koma tilfinningum, hugsunum og skoðunum sínum á framfæri á fjölbreyttan hátt. Nemendur eru hvattir til að beita gagnrýnni hugsun, rökstyðja skoðanir sínar og taka tillit til skoðana annarra. Unnið með markmiðasetningu og mikilvægi heilbrigðs lífsstíls.
Þekkingarviðmið
- hugtökunum: heilbrigði, velferð, hollusta, hvíld, hreyfing, hreinlæti, hamingja og hugrekki
- mikilvægi eigin ábyrgðar á velferð sinni
- gildi heilbrigðs lífsstíls
- skaðsemi fíknihegðunar/vímuefna
- kostum góðs og heilbrigðs félagslífs
- mikilvægi jákvæðrar framtíðarsýnar
- mikilvægi kynheilbrigðis.
Leikniviðmið
- bera ábyrgð á eigin velferð, líkamlegri og andlegri
- afla sér heilsutengdra upplýsinga
- skoða markmið sín og lífsstíl
- meta gildi þess að lifa heilbrigðu og reglusömu lífi
- nýta sér upplýsingar um forvarnir og heilsueflingu
- leita sér upplýsinga varðandi kynfræðslu.
Hæfnisviðmið
- tileinka sér jákvætt hugarfar
- taka ábyrgð á eigin lífsstíl og vera meðvitaðri um að daglegar ákvarðanir og breytni hafa áhrif til framtíðar
- nýta sér heilsutengdar upplýsingar
- velja heilsueflandi lífsstíl
- taka ígrundaðar ákvarðanir varðandi kynheilbrigði sitt.