LIGR1KY03 - Kynningaráfangi í listgreinum

Í þessum áfanga fá nemendur innsýn í verklegt nám á sviði handverks og lista. Þeir kynnast ólíkri tækni og vinnuaðferðum í myndlist, listasögu og handverki og efla með því skynjun sína og hugsun á jákvæðan hátt. Eftir áfangann ættu nemendur að finna hvort þeir hafi áhuga á að kynna sér áframhaldandi nám á þessu sviði og geta þá stefnt í þá átt. Verkefnin eru fjölbreytt og nokkuð frjáls undir leiðsögn kennara. Ætlast er til að nemendur vinni nokkuð sjálfstætt, séu vandaðir í vinnubrögðum og þjálfist í því að breyta hugmynd í fullunnið verk. Eins er ýtt undir gagnrýna hugsun gagnvart eigin verkum og annarra. Megintilgangur listmenntunar er sá að nemendur læri að skapa og skynja í gegnum fjölbreyttan efnivið og finni nýjar og einstaklingsbundnar lausnir á viðfangsefnum sem hjálpar þeim að virkja skynfæri sín og verða næmari fyrir umhverfinu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • formum, línum og hreyfingum innan listsköpunar
  • gildi lita og notkun þeirra í umhverfi okkar
  • ferli frá hugmynd að fullunnu verki
  • aðferðum við listsköpun úr efnum sem skaða ekki umhverfið
  • nýtingu efniviðs úr daglegu umhverfi til listsköpunar
  • endurvinnslu
  • sjálfbærni og umhverfisvernd
  • mikilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð
  • sameiginlegum þræði í ólíkum listgreinum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota hugmyndabók og skrá hugmyndir
  • sýna sjálfstæð vinnubrögð og vandvirkni í verkefnavinnu
  • vinna með endurvinnslu efna úr nánasta umhverfi í listsköpun
  • skipuleggja eigið vinnuferli og gera uppdrætti/hugmyndir að verkefni
  • taka þátt í umræðum um eigin verk og annarra nemenda
  • þróa hugmynd yfir í fullunnið verk
  • kynna niðurstöður sínar á skilvirkan hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta hæfni sína í listræna vinnu og sköpun
  • sýna frumkvæði í verkefnavinnu og verkefnavali
  • beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræðni og frumleika við lausnir vinnu sinnar
  • geta unnið á persónulegan hátt með eigin hugmyndir og útfært þær eftir sinni eigin tilfinningu í fallegan nytjahlut, skreyti eða skúlptúr
  • geta opnað augun fyrir hinum hversdagslegu efnum og hlutum í nánasta umhverfi og nýtt þá í listsköpun
  • vinna með efni úr nánasta umhverfi
  • vera virkur í umræðum um umhverfið og endurnýjun
  • vera sjálfbær og tileinka sér endurvinnslu í listsköpun