Í þessum áfanga verður stiklað á stóru í þróun lífs á jörðinni. Skoðaðar verða helstu fylkingar lífvera, einkenni þeirra og skyldleiki. Flokkunarkerfi lífvera er skoðað og nemendur kynnast helstu hugtökum í líffræði. Nemendur vinna í sameiningu tölvugert kort sem sýnir þróun og tengsl lífvera á jörðinni í 3500 miljón ár. Lokaverkefni áfangans verður nákvæm skoðun hvers nemenda eða hóps á ákveðinni tegund lífvera. Lokaafurðin er svo sett í sameiginlegt lokaverkefni áfangans.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökum sem tengjast líffræði og þróunarfræði
- skilyrðum sem stuðluðu að upphafi lífs á jörðinni
- flokkunarkerfum lífvera á jörðinni
- einkennum helstu fylkinga lífvera með áherslu á plöntur og dýr
- grunngerðum æxlunar
- drifkrafti þróunar við framrás lífs og fjölbreytileika þess
- skyldleika tegunda og aðferðum við að meta hann
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa líffræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
- vinna sjálfstætt að líffræðilegum verkefnum
- vinna með líffræðileg hugtök á íslensku og ensku
- velja úr safni heimilda og nýta þær til að koma eigin texta til skila á skilmerkilegan hátt
- lesa í og ræða sambönd og tengsl viðfangsefna innan greinarinnar
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna sjálfstæði við að miðla niðurstöðum úr verkefnum
- geta tengt saman efnisþætti við úrslausn viðfangsefna
- greina, hagnýta og meta upplýsingar í töluðu eða rituðu máli, myndrænt eða í töflum
- nýta hópavinnu til að leysa flóknari viðfangsefni
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
- skiptast á skoðunum við aðra um lausnir og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega í mæltu máli og myndrænt