Í áfanganum vinna nemendur verkefni með grunnaðferðum leirmótunar. Einnig kynnast nemendur einfaldri gifsmótagerð. Farið er í vinnuferli hönnunar, frá hugmynd að fullunnum nytjahlut þar sem hönnun bolla er skoðuð ásamt því að skilgreina hvað felst t.d. í vel hönnuðum nytjahlut. Nemendur útbúa sitt eigið gifsmót og vinna úr því bolla með mismunandi útfærslum hvað varðar hanka,skreytingu og þess háttar. T.d. er hvatt til notkunar á fjölbreyttum efnum ásamt leir í hankana t.d. tré, málm, plast eða öðrum tilbúnum hlutum úr umhverfinu/náttúrunni. Í áfanganum kynnast nemendur þeirri hugmyndavinnu og skissuvinnu sem fram fer fyrir fjöldaframleiðslu nytjahlutar,ásamt því að vinna skipulega í hugmynda og skissubók.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- einfaldri gipsmótagerð
- skapandi lausnaleit í gegnum tilraunavinnu ásamt hugmynda og skissuvinnu
- fjölbreytileika leirs og aðferða til sköpunar
- að sjá fleiri og opnari möguleika í vinnuferlinu
- sjálfum sér, hugsun og verklagi
- hvernig menning og listir tengjast atvinnusköpun og samfélagsþróun
- gildi menningararfsins, hvort sem hann snýr að heimabyggð eða heiminum öllum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- virkja hugmyndaflugið og þar með sköpunarkraftinn
- geta notið lista og skapandi starfs á margvíslegu formi
- geta skipst á skoðunum og átt uppbyggileg samskipti
- nýta sér skissubók í hugmyndavinnu
- vinna einfalt gifsmót
- nýta fjölbreyttan efnivið til sköpunar
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tileinka sér skapandi lausnarhugsun sem hann getur nýtt bæði í leik og starfi
- geta sýnt frumkvæði og skapandi hugsun
- geta greint ný tækifæri í umhverfinu
- geta notað fjölbreyttar aðferðir við að leysa viðfangsefni
- horfa á sköpun, myndlist og hönnun með opnum hug