LEIR1MT03 - Leirmótun

Markmið áfangans er að örva og ýta undir sköpunargleði nemenda og skilning þeirra á þrívíddarmótun í leir. Í áfanganum kynnast nemendur undirstöðuatriðum í meðferð leirs, grunnþáttum keramikmótunar og þeim efnum sem unnið er með í keramik. Kenndar eru helstu aðferðir við mótun leirs eins og plötuaðferð og slönguaðferð. Áhersla er lögð á mótun forma og að nemendur öðlist tilfinningu fyrir efninu og möguleikum þess. Fræðsla er um notkun áhalda og nemendur læra að beita því áhaldi sem við á hverju sinni. Unnið verður með steinleir og jarðleir og fræðst verður um önnur efni sem við koma faginu. Verkefni verða nokkuð frjáls undir handleiðslu kennara. Lögð er áhersla á skapandi, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • eiginleikum leirsins og mismunandi ástandi hans m.t.t. þurrks
  • opnum og lokuðum formum í leir
  • lífrænum formum í leir
  • mynsturgerð og meðferð mynstra í hönnun
  • formum, línum og hreyfingu innan listsköpunar
  • ferli frá hugmynd að fullunnu verki
  • mikilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð í handverki
  • gildi lita og notkun þeirra í umhverfi okkar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • hnoða leir
  • mótun leirs
  • nota hugmyndabók og skrá hugmyndir
  • sjálfstæðum vinnubrögðum og vandvirkni í verkefnavinnu
  • skipuleggja eigið vinnuferli og gera uppdrætti/skissur að verkefni
  • setja fram hugmyndir sínar á munnlegan hátt og ræða þær opinskátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • þekkja fjölbreytni leirs, glerunga og skreytingaraðferða
  • nýta sér hæfni sína í listræna vinnu og sköpun
  • sýna frumkvæði að verkefnum og verkefnavali
  • vinna með hugmyndir sínar á persónulegan hátt og sýna sjálfstæði
  • beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræðni og frumleika við lausnir vinnu sinnar
  • þroska færni sína og skilning á list og hönnun