Markmið áfangans er kynja- og jafnréttisfræðsla. Fjallað er um jafnrétti, karlmennsku/kvenmennsku, fjölmiðla, klámvæðingu, kynbundið ofbeldi, stjórnmál og fleira. Ýmsar birtingarmyndir kynjaskekkju skoðaðar og greindar. Lögð er áhersla á umræður og lýðræðislega nálgun í kennslunni, nemendur eru hvattir til að taka mikinn þátt og hafa áhrif á efnisþætti áfangans. Áfanginn byggir á virkni og þátttöku nemenda þar sem reynir á sjálfskoðun, greiningu á umhverfi sínu og umræðum um eigin viðhorf jafnt og annarra.
Þekkingarviðmið
- á helstu hugtökum jafnréttismála
- birtingarmyndum kynjaskekkju í nærsamfélagi
- birtingarmyndum kynjaskekkju frá alþjóðlegu sjónarhorni
Leikniviðmið
- beita hugtökum kynjafræði á ólíkar aðstæður
- meta jafnrétti útfrá menningarlegum gildum samfélagsins
- rýna í menningu og átta sig á stöðu kynjanna eins og hún birtist þar
Hæfnisviðmið
- skilja helstu orsakir kynjaskekkjunnar samkvæmt hugmyndum kynjafræðinnar
- geta tengt menningu samfélagsins, gildi og verðmæti við eigið líf
- ígrunda viðhorf sín
- setja sig í spor annarra
- dýpka skilning á félagsheiminum sem hann býr í