KFRT3VF05 - Vísindaskáldskapur og fantasíur

Áfanginn fjallar um kvikmyndafræði vísindaskáldsagna og fantasía, sögu þeirra og virkni. Farið verður í texta úr ýmsum fræðibókum og nemendum er kynnt lykilhugtök og aðferðir í túlkun kvikmynda. Í framhaldi verður farið yfir sögu hryllingsmynda og lesnar valdar fræðigreinar. Í kvikmyndasýningunum verður reynt að draga fram þau sérkenni sem einkenna lesefni hverrar viku. Námsmat felst í áhorfi mikilvægra kvikmynda í kvikmyndasögunni, lesverkefnum, munnlegum og verklegum verkefnum. Nemendur munu nýta sér kvikmyndamiðilinn sjálfan til þess að kynnast möguleikum og áhrifum hans. Áhersla er lögð á sjálfstæða hugsun og sjálfstæð vinnubrögð, nemendur eru hvattir til að horfa með gagnrýnum augum á námsefnið jafnt sem eigin skoðanir og viðhorf. Mikil áhersla verður lögð á umræður í tímum og því er góð mæting mjög mikilvæg. Verkefnavinna miðar að því að nemendur öðlist hæfni til að nýta eigin þekkingu og reynslu við úrlausn nýrra viðfangsefna.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægum kvikmyndafræðilegum hugtökum
  • völdum þáttum í kvikmyndasögu vísindaskáldsagna og fantasía
  • grunnaðferðum í greiningu kvikmynda
  • grunnhugtökum í gerð og framleiðslu kvikmynda

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa kvikmyndafræðilegan texta
  • endursegja og skýra kvikmyndafræðilegan texta
  • beita gagnrýnni hugsun
  • meta eigin rök og annarra
  • tjá sig og hlusta á aðra
  • tengja kvikmyndafræði við eigin reynslu og veruleika

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta miðlað skoðunum og fræðilegum athugunum á skýran hátt
  • geta greint kvikmyndir á fræðilegan hátt
  • geta notað hugtök og aðferðir til að skilja og greina miðilinn betur
  • geta beitt gagnrýnni hugsun á markvissan hátt á öllum sviðum lífsins
  • geta borið saman ólíkar skoðanir og rök til að komast að sameiginlegri niðurstöðu
  • geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissan hátt
  • skilja betur heiminn og samfélagið sem hann býr í