KFRT3HR05 - Hryllingsmyndir
Áfanginn fjallar um kvikmyndafræði hryllingsmynda, sögu þeirra og virkni. Farið verður í texta úr ýmsum fræðibókum og nemendur kynnast lykilhugtökum og aðferðum í túlkun kvikmynda. Í framhaldi verður farið yfir sögu hryllingmynda og lesnar valdnar fræðigreinar. Í kvikmyndasýningunum verður reynt að draga fram þau sérkenni sem einkenna lesefni hverrar viku. Áríðandi er að nemendur mæti vel og taki virkan þátt í umræðum í tímum. Áhersla er lögð á sjálfstæða hugsun og sjálfstæð vinnubrögð. Nemendur eru hvattir til að horfa með gagnrýnum augum á námsefnið jafnt sem eigin skoðanir og viðhorf. Mikil áhersla verður lögð á umræður í tímum og því er góð mæting mjög mikilvæg. Verkefnavinna miðar að því að nemendur öðlist hæfni til að nýta eigin þekkingu og reynslu við úrlausn nýrra viðfangsefna.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sögu hryllingsmynda
- völdum kvikmyndafræðilegum hugtökum
- undirstöðuatriðum kvikmyndagreiningar
- lestri kvikmyndafræðilegra texta
- kvikmyndafræðilegum samræðum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa fræðilegan texta
- endursegja og skýra fræðilegan texta.
- beita gagnrýnni hugsun
- meta eigin rök og annara
- tjá sig röklega og hlusta á aðra
- tengja kvikmyndafræði við eigin reynslu og veruleika
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta miðlað torskildum fróðleik á skýran hátt
- geta beitt gagnrýnni hugsun á markvissan hátt
- geta borið saman ólíkar skoðanir og rök til að komast að sameiginlegri niðurstöðu
- geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissari hátt
- skilja betur heiminn og samfélagið sem hann býr í