KFRT2YS03 - Tölvuleikir - yndisspilun

Í þessum valáfanga í tölvuleikjafræði er áhersla lögð á yndisspilun með það fyrir augum að gefa nemendum tækifæri á að skoða fjölbreytta tölvuleiki og að nemendur þrói bæði skilning og getu. Geti greint virkni og áhrif tölvuleikja og séð þá frá nýjum sjónarhornum. Áhersla er lögð á sjálfstæða hugsun og sjálfstæð vinnubrögð, nemendur vinna sjálfstætt að verkefnum og að þeir þjálfist í að að tjá hugsun sína skirt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • að spila óhefðbundna tölvuleiki
  • að lesa sér til fræðslu og ánægju gagnrrýnin texta um tölvuleiki
  • hvernig tölvuleikir geta nýst þeim á jákvæðan hátt í lífi og starfi

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa fræðilegan texta um tölvuleiki
  • beita gagnrýnni hugsun í greiningu tölvuleikja
  • tjá sig um greiningu á tölvuleikjum
  • tengja tölvuleiki við eigin reynslu og veruleika

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta tölvuleiki sem jákvætt afl í lífi og starfi
  • geta greint sögulegt, félagslegt eða menningarlegs samhengi í tölvuleikjum
  • geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissari hátt