ÍSLS1ÍS04 - Íslendingasögur

Í áfanganum er lögð áhersla á lestur og umfjöllun Íslendingasagna. Nemendur lesa og vinna með texta úr sögunum. Lögð verður áhersla á að velja sögu sem gerist í nærumhverfi nemendanna og tengja við ýmis örnefni á svæðinu og sögurnar á bak við þau. Áhersla er lögð á þjálfun í lestri, ritun, tjáningu og málnotkun á fjölbreyttan hátt. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda. Nemendur nýta sér hljóðbækur og talgervla við námið.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • varðveislu Íslendingasagna
  • aðstæðum fólks á tímum Íslendingasagna
  • innihaldi og söguþræði umfjöllunarefnis
  • sögum og ýmsum örnefnum í nærumhverfi.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita þekkingu sinni í umræðu um efni áfangans
  • miðla þekkingu sinni á sögum og örnefnum í nærumhverfi
  • taka þátt í umræðum
  • nota talgervil, hljóðbækur og aðra tækni við námið.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • greina innihald og söguþráð
  • taka þátt í málefnalegum umræðum í tengslum við námsefnið
  • gera sér grein fyrir þeim breytingum sem hafa orðið á lífskjörum fólks frá landnámi
  • nýta þá tækni sem auðveldar námið.