ÍSLS1DÆ04 - Íslensk dægurmenning
Í áfanganum er lögð áhersla á íslenska dægurmenningu s.s. íslenskar kvikmyndir, sjónvarps- og útvarpsþætti, hlaðvörp og leikrit. Farið verður yfir helstu atriði íslenskrar dægurmenningar frá upphafi og fram að okkar dögum. Kynnt verða íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsþættir. Rædd verða þau leikrit sem eru í gangi í leikhúsum landsins hverju sinni. Áhersla er lögð á þjálfun í lestri, ritun, tjáningu og málnotkun á fjölbreyttan hátt. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda. Nemendur nýti sér viðeigandi hjálpargögn og lestrarleið við hæfi hvers og eins.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu þáttum íslenskrar dægurmenningar
- tengslum dægurmenningar við breytingar á samfélaginu
- hvert er hægt að fara í leikhús/kvikmyndasýningar
- hvar er hægt að nálgast upplýsingar um leikhússýningar/kvikmyndasýningar
- hvar og hvernig er hægt að kaupa miða
- mismunandi hjálpargögnum til lesturs og ritunar.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita þekkingu sinni í umræðu um efni áfangans
- greina innihald og boðskap í leikhúsverkum/kvikmyndum
- sækja leiksýningu/kvikmyndasýningu
- gera grein fyrir upplifun sinni
- skrifa kvikmyndarýni
- nýta sér hjálpargögn við námið.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- greina innihald og söguþráð
- mynda sér skoðun á leiksýningum/kvikmyndum
- taka þátt í umræðum á gagnrýnin hátt
- hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- gera sér grein fyrir að saga leikhúss og kvikmynda eru hluti af menningararfi Íslendinga
- nýta þá tækni sem auðveldar námið.