Í áfanganum er lögð áhersla á bókmenntir, lesin er skáldsaga og styttri skáldverk. Nemendur velja sér bók í upphafi annar, lesa hana, taka þátt í umræðum um innihald sögunnar og vinna ýmis verkefni tengd sögunni. Áhersla er lögð á þjálfun í lestri, ritun, tjáningu og málnotkun á fjölbreyttan hátt. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda. Nemendur nýta sér hljóðbækur og talgervla við námið.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi lesskilnings
- grunnhugtökum bókmenntafræðinnar
- ólíkum tjáskiptaleiðum
- aðgengi lesefnis
- inntaki lesefnis.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa ólíka bókmenntatexta
- greina grunnhugtök bókmenntafræðinnar
- túlka og meta atburðarrás og persónur í lesefni
- íhuga og tjá sig um lesefni í ræðu og riti
- þekkja aðgengi að lesefni
- nota talgervil, hljóðbækur og aðra tækni við námið.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nálgast lesefni á sjálfstæðan hátt
- lesa bókmenntir sér til gagns og gamans
- íhuga og tjá sig á ólíkan hátt um lesefni
- nýta sér talgervla og önnur hjálpartæki við lestur.