HEST2FV05 - Umhirða og atferli - verklegt
Áfanginn er verklegur og munu nemendur læra að ríða nákvæmar reiðleiðir á reiðvelli og fá grunnþjálfun í einföldum fimiæfingum við hendi og á baki. Nemendur verða meðvitaðari um líkamsbeitingu sína og áhrif hennar á hestinn í reið. Farið verður ítarlega í ásetu og stjórnun knapans. Nemendur læra um notkun mismunandi búnaðar í reið og við hringteymingu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ábendingarkerfi knapans
- aðferðum til að bæta eigið jafnvægi
- náttúrulegu eðli og atferli hestsins og hvernig hestinum er kennt út frá því
- einföldum fimiæfingum sem unnar eru við hendi, í hringteymingu og á baki
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- styðja sig við mismunandi aðferðir í þjálfun hesta
- geta framkvæmd einfaldar fimiæfingar við hendi og á baki
- bregðast rétt við mismunandi skapgerð og hegðun hesta
- nýta sér mismunandi ásetur og ábendingar við stjórnun hests
- geta fylgt hreyfingum hestsins mjúklega eftir í mismunandi ásetu og á mismunandi gangtegundum
- taka sjálfstæða ákvörðun í vali á þjálfunarbúnaði
- geta lesið í viðbrögð hests hvort hann sé heilbrigður eða þarfnist aðhlynningar
- taka sjálfstæðar ákvaðarnir varðandi eigið verklag í umgegni hesta
- miðla og aðstoða við aðra í hestamennsku
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera sjálfstæður í vinnubrögðum í umgengni við hesta og borið ábyrgð á fóðrun og umhirðu þeirra
- miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra
- vinna út frá forsendum hestsins með hestvænar aðferðir að leiðarljósi
- finna fyrir auknu sjálfstrausti og vera öruggari með sig á hestbaki