HEST2FB05 - Umhirða og atferli - bóklegt 2
Í áfanganum verður farið ítarlega í gangtegundir íslenska hestsins og grunnatriði þjálfunar með tilliti til hreyfieðlis hestsins og líkamsbeitingu knapans. Nemendur kynnast þróun reiðmennsku og hestahalds á Íslandi og farið verður yfir helstu keppnisgreinar og félagskerfi hestamennskunnar á Íslandi. Í áfanganum verður lögð áhersla á atriði í fóðrun, heilbrigði og umhirðu hesta.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- gangtegundum íslenska hestsins
- þróunarsögu reiðmennsku og hestahalds á Íslandi
- líkama hestsins og hvernig hesturinn beitir sér með og án knapa
- fræðunum sem liggja að baki einföldum fimiæfingum við hendi, reið og í hringteymingu
- líkamsbeitingu knapans og hvernig hún hefur áhrif á hestinn
- heilbrigði, fóðrun og umhirðu hesta
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tjá sig í umræðum um hesta á faglegum grundvelli
- vinna sjálfstætt og í hópum
- flokka hesta í rétt holdastig og reikna fóðurþarfir þeirra
- greina líkamlega hegðun og skapgerð mismunandi hesta
- geta skilgreint einfaldar fimiæfingar við hendi og á baki
- sjá mun á gangtegundum og líkamsbeitingu hesta með og án knapa
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra
- setja saman fjölbreytta og góða þjálfunaráætlun
- greina og skilja þjálfunarferlið hjá öðrum knöpum
- taka þátt í umræðum um það sem er að gerast í hestamennskunni í dag