HEST1HV05 - Umhirða og atferli - verklegt
Áfanginn er verklegur og í fyrri hluta hans eru helstu þættir í daglegum rekstri hesthúss kenndir. Nemendur læra að bera ábyrgð á fóðrun og umhirðu ásamt því að meta hvenær hestur er heilbrigður eða þarfnast aðhlynningar. Nemendur læra að meta holdastig hesta og þekkja hvaða áhrifavaldar í fari hestsins og umhverfi hans hafa áhrif á það. Nemendur fara í grunnæfingar við hendi, í hringteymingu og á hestbaki og læra um mismunandi þjálfunarbúnað. Unnið verður með stjórnun og ásetu knapans á hestbaki. Nemendur læra að nýta sér náttúrulegt eðli, skynjun og atferli hestsins við þjálfun. Nemendur þurfa að kenna öðrum nemendum á námstímanum. Nemendur halda þjálfunardagbók og taka þátt í hirðingu og fóðrun.
Þekkingarviðmið
- Þekkingarviðmiðum áfangans er gerð skil í bóklega hluta námsins
Leikniviðmið
- lesa í viðbrögð hests, hvort hann er heilbrigður eða þarfnast aðhlynning
- meta mismunandi holdastig hesta og geta gert fóðurplan samkvæmt því
- taka sjálfstæðar ákvaðarnir varðandi eigið verklag í umgengni hesta
- bregðast rétt við mismunandi skapgerð og hegðun hesta
- nýta sér mismunandi ásetur og ábendingar við stjórnun hests
- taka sjálfstæða ákvörðun í vali á þjálfunarbúnaði
- ná færni í einföldum grunnæfingum sem unnar eru við hendi, í hringteymingu og á baki
Hæfnisviðmið
- bera ábyrgð á daglegri umhirðu hesthúss og reglum varðandi hestahald
- vera sjálfstæður í vinnubrögðum í umgengni við hesta og borið ábyrgð á fóðrun og umhirðu þeirra
- miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra
- vinna út frá forsendum hestsins með hestvænar aðferðir að leiðarljósi