HEIS1GR02 - Almenn matreiðsla
Áfanginn fjallar um almenna matreiðslu þar sem nemendur fá þjálfun í að fylgja uppskriftum til að útbúa máltíðir. Áhersla er lögð á undirbúning, framkvæmd og frágang við eldamennsku. Nemendur læra um næringu auk tengsl mataræðis og lífsstíls. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi hollrar næringar og fjölbreyttu fæðuvali
- fæðuhringnum og samsetningu fæðunnar
- mikilvægi hreinlætis við eldamennsku
- notkun helstu mælitækja, áhalda og tækja í eldhúsi
- góðum og skipulögðum vinnubrögðum í eldhúsi
- hvernig eldað er eftir uppskriftum.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa utan á umbúðir og sjá hvaða hráefni eru í vörunni
- sjá úr hvaða fæðuflokkum maturinn er
- viðhafa hreinlæti við eldamennsku
- nálgast uppskriftir á fjölbreyttan hátt
- elda eftir uppskrift
- vinna á skipulagðan hátt í eldhúsi
- leggja á borð og ganga frá eftir borðhald.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipuleggja fjölbreyttan og næringarríkan matseðil
- elda hollan og fjölbreyttan mat
- nýta tæki og áhöld í eldhúsi við matargerð
- sýna góða umgengni og hreinlæti við matargerð