Í þessum áfanga er höfuðáherslan lögð á bakstur. Áhersla er lögð á undirbúning, framkvæmd og frágang við bakstur. Nemendur fá þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum og samvinnu við aðra nemendur.
Þekkingarviðmið
- hvernig unnið er eftir uppskriftum/verklýsingum
- að hægt er að leita uppskrifta á fjölbreyttan hátt
- hvernig hægt er að baka á einfaldan hátt
- notkun helstu mælitækja, áhalda og tækja í eldhúsi
- góðum og skipulögðum vinnubrögðum í eldhúsi
- mikilvægi hreinlætis við bakstur.
Leikniviðmið
- baka kökur, brauð og útbúa aðrar veitingar
- nálgast uppskriftir á fjölbreyttan hátt
- vinna eftir uppskriftum
- vinna á skipulagðan hátt í eldhúsi
- nota helstu áhöld og tæki í eldhúsi á öruggan hátt
- viðhafa hreinlæti við bakstur
- leggja á borð og ganga frá eftir borðhald.
Hæfnisviðmið
- baka kökur og brauð eða útbúa aðrar veitingar
- nýta tæki og áhöld í eldhúsi við matargerð
- sýna góða umgengni og hreinlæti við matargerð
- fara eftir almennum öryggisatriðum við eldhússtörf
- finna uppskriftir eftir ólíkum leiðum
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
- ganga frá áhöldum og hráefni sem hefur verið notað.