HEIM2BY05 - Gagnrýnin hugsun
Er guð til? Af hverju er til eitthvað frekar en ekkert? Hvernig vitum við að veruleikinn er eins og hann birtist okkur? Hvað er þekking? Hvað er sannleikur? Hvað er vitund? Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í vestrænni heimspekisögu frá Grikklandi til forna fram að lokum 20. aldar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í þróun heimspeki í gegnum mannskynssöguna ásamt grundvallarskilningi á helstu heimspekikenningum sem hafa mótað viðhorf mannsins til siðferðis, frelsis, guðs og eðli heimsins í kringum hann. Ásamt völdu lesefni verður notast við bíómyndir, tónlist og myndbrot úr dægurlífinu. Áhersla er lögð á sjálfstæða hugsun og sjálfstæð vinnubrögð, nemendur eru hvattir til að horfa með gagnrýnum augum á námsefnið jafnt sem eigin skoðanir og viðhorf. Mikil áhersla verður lögð á umræður í tímum og því er góð mæting mjög mikilvæg. Verkefnavinna miðar að því að nemendur öðlist hæfni til að nýta eigin þekkingu og reynslu við úrlausn nýrra viðfangsefna.
Þekkingarviðmið
- völdum heimspekingum og heimspekikenningum frá Forn Grikklandi til okkar tíma
- mikilvægi gagnrýnnar hugsunar
- undirstöðuatriðum heimspekilegrar hugsunar
- lestri heimspekitexta
- heimspekilegum samræðum.
Leikniviðmið
- lesa heimspekitexta
- endursegja og skýra heimspekilega texta
- beita gagnrýnni hugsun
- meta eigin rök og annarra
- tjá sig heimspekilega og hlusta á aðra
- tengja heimspeki við eigin reynslu og veruleika.
Hæfnisviðmið
- geta miðlað torskildum fróðleik á skýran hátt
- geta beitt gagnrýnni hugsun á markvissan hátt á öllum sviðum lífsins
- geta borið saman ólíkar skoðanir og rök til að komast að sameiginlegri niðurstöðu
- geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissari hátt
- skilja betur heiminn og samfélagi sem hann býr í
- beita heimspekilegum hugmyndum til þess að leysa úr siðferðislegum vandamálum.