HANV2SK03 - Skartgripagerð 2

Í þessum áfanga fá nemendur að spreyta sig á ólíkri tækni, aðferðum og efnum innan skartgripahönnunar. Verkefnin verða nokkuð frjáls í höndum nemenda þar sem þeir þurfa að hanna sína eigin skartgripi með tilliti til efnis, litavals og útlits. Í boði er að hanna hálsfestar, armbönd, eyrnalokka, nælur og annað skart. Nemendur fá að vinna með hugmynd að fullunnu verki og sjá hana þróast í veruleika sem er mjög gefandi og þroskandi. Tilfinning fyrir listum býr í hverjum einstaklingi og því fá nemendur tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn í sjálfum sér og læra að skynja umhverfi sitt betur og nýta það til listsköpunar, eins og með endurnýtanleg efni. Lögð er áhersla á skapandi, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mynsturgerð og meðferð mynstra í hönnun
  • formum, línum og hreyfingu innan listsköpunar
  • ferli frá hugmynd að fullunnu verki
  • Mmkilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð í handverki
  • gildi lita og notkun þeirra í umhverfi okkar
  • umhverfismennt og endurnýtingu efna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota hugmyndabók og að skrá hugmyndir
  • beita sjálfstæðum vinnubrögðum og að vera vandvirkur í verkefnavinnu
  • skipuleggja eigið vinnuferli og gera uppdrætti/skissur að verkefni
  • setja fram hugmyndir sínar á munnlegan hátt og ræða þær opinskátt
  • vinna með endurnýtanleg efni í listsköpun

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér hæfni sína í listræna vinnu og sköpun
  • sýna frumkvæði í verkefnavinnu og verkefnavali
  • vinna með hugmyndir sínar á persónulegan hátt og sýna sjálfstæði
  • nýta sér hversdagslega hluti í umhverfinu og nota þá í listsköpun
  • beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræðni og frumleika við lausnir vinnu sinnar
  • vinna með efni úr nánasta umhverfi
  • þroska færni sína og skilning á list og hönnun
  • vera sjálfbær og tileinka sér endurnýtanleg efni í listsköpun